|
Heimsóknir
Í dag: 13 Alls: 16916
|
01.02.2009 22:18:46 / reva
Halló allir sem hingað kíkja
þá er komin ný ríkisstjórn og kvenn-forsetisráðherra "skítið" ég er bara 42 og það hafa orðið miklar breitingar á fáum árum þó það mætti ganga hraðar en það er eins með þetta og annað karlarnir verða sjálfsagt að halda að þeir hafi haft hugmyndina til að hún komi til frammkvæmda enn ég nenni ekki að pæla í því ,treisti Jóhönnu Sig alveg 100 % þó ég sé kvorki hrifin af samf né v-gr og svo sem engum öðrum . Ég var á þorrabl í Fljótshlíðini um helgina og var það bara að mestuleiti fínt ja nema maturinn , hann kom úr Þorlákshöfn og var ógeðslegur ég velti fyrir mér hvernig í ósköpunum menn hafa getu til að láta svona frá sér í fyrstalagi var maturinn klárlega afgangur frá einhverju öðru þorrabl ekkert nema fita og svona járn-geimslu bragð af öllu ja maður fitnaði ekki af honum um hegina . talandi um það nú er komið 1 ár síðan ég breitti mataræðinu og það eru farinn 15 kg þetta fer hægt enn það fer það fer að stittast í að ég komist á Reykjalund svo nú er ekkert elsku mamma ég verð að fara að hætta að reykja ó may god hvað mig kvíður fyrir að kveðja þessa vinkonu sem er búin að hanga utan í mér í 27 ár læt þetta duga núna kv Rikka
»
11.11.2008 01:33:06 / reva
dekkið allan linkinn veljið og sjáið hvað kellan er alltaf að læra meira og meira http://smileboxur.com/playBlog/4e544d344e6a41354f513d3d0d0a
»
05.11.2008 12:47:52 / reva
Mikið var ég glöð  þegar ég sá að Obama var kosinn því alveg er ég viss um að þessi maður á eftir að kalla meiri frið yfir heimin  og er það mín trú að hann sé einn þáttur í hreinsun heimsins eins og ég talaði umm í síðustu blogg fæslu Og talandi um hreinsun það væri öllum þeim mönnum hollast að viðurkenna syndir sínar strax sem eru að reyna að komast undan því að borga fyrir það sem þeir eru búnir að koma þjóðini í og bjóða sig framm í að vinna við aðhlinningu fólks sem hefur ekki heilsu til að takast á við það að fara að lifa undir fátæktar mörk.
»
19.10.2008 08:57:25 / reva
Nú er gamli heimurinn að hreinsast burt, öll vitleysan þurfi að fara svo demanturinn komi í ljós. Höldum okkur fast, öndum djúpt ofan í ölduna. Þetta verður allt í lagi. Við þurfum að vera sterk, bjartsýn, standa þétt í fæturnar, finna jarðtenginguna og kærleikann allt í kringum okkur! Það bíða okkar betri tímar, þar sem manngildið ræður ríkjum. Einblínum á hið góða alls staðar núna, leyfum því að vaxa og munum að allt vex sem fær athygli frá okkur! ******
»
06.08.2008 10:04:19 / reva
halló jæja þá erum við komin heim frá Mallorka æðisleg ferð og vil ég helst bara flytja út það sem mér leið svo mikið betur þar Friðveig og Skarphéðinn eru hjá mér þessa viku þar sem leikskólinn er lokaður ,sem mér finst alveg furðulegt þar sem gera má ráð fyrir því að fólk sem er í námi verði að nota ALLT sumarið til að vinna til að rétta sig af þar sem námsláninn eru nú ekkert til að hrópa húrra yfir ég reindar hef þá skoðun að ef fólk er að standa sig vel þá íraun ætti það bara að borga leigu firsta árið síðan gangi leigan uppí næsta ár og svo frv þegar svo viðkomandi klárar sitt nám þá gangi leigan uppí greiðslu til námslána þannig léttir það á nemendum og virkar einnig hvetjandi enn nóg um það ég breiti víst ekki neinu set myndir inn seinna Rikka
»
18.07.2008 16:49:55 / reva
hallo allir heima erum ordin bökud  í sólini og sjónum algert letilíf  hótelid geggjad nema rúmin eru of ný hörd  ` tap eru ekki íslenskir stafir í tÖlfuni svo tid verdid bara ad giska hvad ég er ad skrifa en annars bara knús frá okkur túrilúrí Gísli og Rikka  :þ  :þ  :þ  
»
12.07.2008 17:50:06 / reva
jæja þá er maður farin að pakka tökum samt alveg ótrúlega lítin farangur með erum farin að læra maður notarsvo lítið af fötum úti bara nóg af nærfötum og bolum nú og að sjálfsögðu stuttbuxur og sundföt  ég held að það fari mest fyrir öllu pilludraslinu annas hlökkum við bara til að fara í frí frá allri þessari neikvæðu umfjöllun sem glimur í eyrunum á manni í hverjum fréttatíma  djöfull fanst mér Guðni Ágústsson góður í fréttunum í gær  bara segja það sem fólk hugsar þetta er skíta ríkistjórn sem gerir ekki neitt í neinu enda er fólk farið að kalla formennina Íngibjörg SÓL-FER afví að hún er alltaf erlendis að bjarga öllu í útlöndum því það er svo cool og Geir HOR-TE því hann svarar öllum eins og okkur komi ekki við hvað hann og hans stjórn sé að gera en allavegana það verður bara næs að sleikja sólina í tvær vikur á Majorca hótelið sem við verðum á heitir Iberostar Royal Cupido og er rétt hjá Palma allavegana það getur vel verið að ég bloggi úti þá koma fleiri fréttir svo bless í bili kv rikka
»
05.07.2008 00:07:57 / reva
já sú gamla er 42 í dag það hafa margir komið í kaffi og meðí og allir færandi hendi og svo fullt af símhringingum og sms-um Takk fyrir allir fyrir að gera þennan dag svona yndislegan fyrir mig
Friðveig og Skarphéðinn ætla að gista hjá ömmu og afa og því er eins gott að fara að koma sér í bælið segi ykkur meira á morgun eða hinn knús og kossar rikka GAMLA
»
30.06.2008 10:17:45 / reva
ég hélt að ég gæti aldrei orðið orðlaus en það er nú .
ég reyni að vera jákvæð um að öll
vonbrigðin , allur sársaukinn, allt óréttlætið og öll hræðslan muni verða tekin frá okkur
að á heimilinu okkar muni aftur ríkja
gleði, hlátur, áhyggjuleysi og trú á að það góða í öllum sé það sem við upplifum í daglegu lífi .
því að :
Þegar að þér er
þrengt og allt hefur snúist gegn þér, þar til þér um
síðir finnst að þú munir ekki þola við mínútu
lengur... þá máttu ekki gefast upp, því einmitt þá er
komið að þeim stað og stund þegar
breyting mun verða á.
( HARRIET BEECHER STOWE
)
Barátta móður fyrir
barni sínu , við sjúkdóma, við örbirgð, við stríð,
við alls
kyns misnotkun og harðýðgi er niðurlægir mannlífið - verður að
verða sameiginleg barátta allra, háð í kærleika
og af ástríðu þeirra er vilja komast af.
( ADRIENNE RICH )
og að lokum:
Kærleikur, er að gefa þeim
sem þarfnast.
Kærleikur, er umhyggja fyrir öllu
sem lifir.
Kærleikur, er að biðja fyrir
öllum, góðum sem slæmum.
Kærleikur, er að lifa sáttur
við sjálfan sig og aðra.
Kærleikur, er að dæma ekki.
Kærleikur, er ljósið sem býr
í hjarta þínu.
kveðja Rikka
»
27.06.2008 00:52:52 / reva
halló allir ég segji ykkur þær sorgarfréttir að Jón Ólafson lífskúsner frá Kirkjulæk í Fljótshlíð er látinn eftir baráttu við krabbamein og bið ég allar góðar vættir að vaka yfir og styrkja alla hans fjölskyldu. ######################################################################### héðan er það að frétta að Gísli ætlar að prufa að fara í vinnu á morgun ,þó ég sjái ekki hvernig hann muni klára sig á því , þar sem hann er bara alveg hund slæmur  en sjálfsagt er allt betra en að hanga yfir þeirri gömlu haha  ######################################################################## hei lásu þið þessa frétt ? mbl.is  Hugh Hefner með sambýliskonum sínum þremur MARIO ANZUONI
Veröld/Fólk | BANG ShowBiz | 25.6.2008 | 11:14
Bakveikur vegna hamagangs í rúminu
„Ég
þjáist af verkjum en ég hef átt við bakvandamál að stríða síðan á
níunda áratugnum. Of mikill tími í að hamast í rúminu með vinkonum,"
sagði Hefner í viðtalinu. já nú er ekkert sem heitir ,2 rúm á mitt heimili    ############################################## annas ekkert meira í dag kv Rikka
ps:  E
»
24.06.2008 05:41:05 / reva
halló endilega skoðið kv rikka
»
22.06.2008 19:45:00 / reva
halló þetta er búin að vera bissí helgi við kíktum bæði á föstudags og laugardags kvöld á ÖMMUSTUÐ  árlegt ættamót hjá G:ísla familíu þannig maður er bara trött bless í bili rikka
»
17.06.2008 14:19:12 / reva
Megrun sem virkar,!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Megrun sem virkar, nú kýlir mar á þetta með stæl!!!!
Vandamálið
með flesta megrunarkúra er að þú færð ekki nóg að borða (sveltikúrinn),
fæðið er of einhæft (bananakúrinn) eða þú ferð á hausinn
(nautalundakúrinn). Þetta hefur þær afleiðingar að fólk svindlar í
megruninni eða hættir eftir 3 daga. En nú hafa amerískir sérfræðingar
komið fram með smábarnakúrinn og íslenskir starfsbræður þeirra aðlagað
hann okkar aðstæðum. Þú hefur tekið eftir því að öll tveggja ára börn
eru grönn. Nú er lykillinn að velgengni þeirra á þessu sviði öllum
aðgengilegur. Hafðu samband við lækni áður en þú byrjar á þessum kúr,
annars þarftu að fara til læknis að honum loknum. Gangi þér vel.
1. dagur. Morgunmatur:
Eitt hrært egg, ristuð brauðsneið með appelsínumarmelaði. Borðaðu tvo
bita af egginu, notaðu ekki gaffal, hentu restinni af egginu á gólfið.
Taktu einn bita af brauði, smyrðu síðan marmelaðinu yfir andlitið og
fötin þín. Hádegi. Fjórir vaxlitir (hvaða litur sem er), handfylli
af kartöfluflögum og eitt mjólkurglas, drekktu 3 mjólkursopa og helltu
restinni niður. Kvöldmatur. Nagaðu blýantsstubb, gleyptu tvær krónur og gyllta tölu. 4 sopar af flötu Sprite. Kvöldsnarl. Hentu ristaðri brauðsneið á eldhúsgólfið.
2. dagur. Morgunmatur.
Taktu brauðsneiðina frá því í gærkvöldi upp af eldhúsgólfinu. Drekktu
úr einu vanilludropaglasi og borðaðu eina túpu af grænmetiskrafti. Hádegi. Hálfur varalitur - Pulsating Pink? og lófafylli af Purina hundamat (valfrjálst bragð). Einn ísmola eftir vali. Eftirmiðdagur.
Sleiktu stóran sleikjó þar til hann verður klístraður, farðu með hann
út og misstu hann í drulluna. Taktu hann upp og sleiktu hann þar til
hann er hreinn aftur. Taktu hann þá inn aftur og misstu hann á góða
ullarmottu. Kvöldmatur. Troddu litlum stein eða baun upp í vinstri
nösina á þér. Helltu applsínu-Svala yfir kartöflumús og borðaðu með
skeið.
3. dagur Morgunmatur: Tvær pönnukökur með miklu
sýrópi, borðaðu aðra með fingrunum, klesstu síðan fingrunum í hárið á
þér. Mjólkur-glas, drekktu helminginn, settu hina pönnukökuna ofan í
glasið. Eftir morgun-mat skaltu taka sleikjóinn upp af
ullarmottunninni, sleikja af kuskið og setja síðan sleikjóinn á setuna
á góðum hægindastól. Hádegi. Þrjár eldspýtur, hnetusmjörs- og
sultusamloka. Hræktu nokkrum bitum af henni á gólfið. Helltu
mjólkurglasi á borðið og sötraðu það upp. Kvöldmatur. Taktu upp
brauðsneiðina frá því í gærkvöldi og fáðu þér einn bita. Full skál af
ís, lófafylli af kartöfluflögum, dálítið af rauðu púnsi. Reyndu að láta
eitthvað af púnsinu frussast út um nasirnar á þér.
4. dagur. Morgunmatur.
Fjórðungur af tannkremstúpu, gerðin skiptir ekki máli, biti af
handsápu, ein ólífa. Helltu mjólkurglasi yfir kornflöguskál og hálfan
bolla af sykri. Þegar kornflögurnar eru gegnumblautar, drekktu þá
mjólkina og gefðu hundinum kornflögurnar. Hádegi. Borðaðu brauðmola af eldhús- og borðstofugólfinu. Finndu sleikjóinn og kláraðu hann. Kvöldmatur. Glas af spaghetti og kakómalti. Skildu kjötbolluna eftir á diskinum. Smávegis augnbrúnalitur í eftirrétt.
**ÞETTA KLIKKAR EKKI EF ÞÚ FYLGIR FYRIRMÆLUM KÚRSINS**
»
17.06.2008 12:08:00 / reva
gleðilega þjóðhátíð allir  ótrúlegt veður í dag miða við að það er 17 júní  en hugsið ykkur að ef það hefði ekki verið hlaupár í ár þá hefði 17 júní verið í gær og nótabene þá var rigning svo við plötuðum veðurguðina haha  ######################################################################## ég var að velta þessu ísbjarnar fári fyrir mér hefur engin pælt í því að þeir gætu verið að flýja Grænland , er bara orðið nóg æti handa þeim þar þið vitið vegna ofveiði alstaðar  ég meina væru þeir að yfirgefa heimkynni sín að ástæðu lausu  ef þetta eru svo greindar skeppnur að það megi ekki henda í þá einu dauðu hrossi til að éta að þeir setji það í samhengi við mannabústaði af hverju sinntu þeir ekki til baka þegar þeir fóru að reka  ég bara spyr ?  ######################################################################## Vís kom á laugardaginn að meta hjá okkur innbúið sem fór í jarðskjálftanum, alveg indisleg kona sem ég man því miður ekki hvað heitir og eiga þeir hjá Vís hrós skilið frá okkur fyrir frábærar viðtökur og samhug TAKK STARFSMENN VÍS  annað sem mér finst að fókk ætti aðeins að hugsa umm það er að segja þeir einstaklingar sem eru að bölsótast út í Tryggingar félaugin að víðast hvar í heiminum stendur fólki ekki til boða að fá nokkuð bætt  afhverju haldið þíð að það séu alltaf þessar safnanir þannig að þið skulið bara skammast ykkar annað var það ekki hátíðar kveðja Rikka
»
Síður: 1 2 3
|
Talning
Fyrir 474 dögum
24 ár síðan við giftum okkur
|